Paris, ljúfa París ;)Hadda Hrund Guðmundsdóttir
jæææja.... ætli maður skelli ekki inn eins og einu bloggi um síðastliðna daga...Það var a.m.k þannig að ég og litla systir skelltum okkur í marglofaða systraferð til Parísar dagana 16. – 21. febrúar. Ég var búin að lofa henni síðasta sumar að við skyldum fara e-ð til útlanda saman, svo frestaðist það fram á haust og svo fram yfir áramót, svo það var kominn tími á að ég stæði við stóru orðin og því var tilvalið að slá 2 flugur í einu höggi og heimsækja Ernu og Önnu Möggu til Parísar þar sem þær eru að skólast ;)
Við mættum s.s. galvaskar til Parísar í hádegi föstudagsins 16. febrúar. Stelpurnar voru svo góðar að taka á móti okkur þar sem við komum með strætó frá flugvellinum og við strunsuðum svo beinustu leið með metró-inu heim til Önnu Möggu. Þar hentum við inn töskunum og skelltum okkur út í heljarinnar göngutúr um borgina. Byrjað var á að heimsækja Sigurbogann og sjá þar BRJÁLÆÐISLEGT hringtorg þar sem gildir bara að strunsa í gegn og aðrir víkja... Við ákváðum að splæsa á okkur ferð upp í Sigurbogann góða og jújú ekki málið, við þurftum bara að labba hann upp!! Örugglega 17.500 tröppur (með smá ýkjum kannski...) en jú það tók a.m.k vel í!! Það var samt svo vel þess virði að láta sig hafa það því útsýnið var alveg magnað, yfir alla borgina og veðrið einnig rosa gott ;)

Þegar komið var niður aftur fóru að birtast prúðbúnir menn með fjöður á höfðinu (sjá myndir) og alltaf jókst magnið af þeim.... það var s.s. e-r athöfn í gangi, kannski e-ð verið að heiðra e-n hermann sem þarna var grafinn or some... how would I know???.... Því næst var bara tekið á röltið þar sem hinar ýmsu byggingar voru skoðaðar, mest skreytta brúin yfir Signu, e-r súla sem Frakkar stálu frá Egyptum og Egyptar gáfu þeim svo seinna...., löbbuðum í gegnum e-n garð og sáum Eiffel-turninn blikka diskóljósum um leið, hvíldum svo mjög svo lúnar lappir fyrir utan Louvre, fengum okkur að eta á e-m restaurant og skunduðum okkur svo fljótlega heim til hvílu eftir skemmtilegann dag ;)

Laugardagurinn var planaður í verslunarleiðangur, sem tókst bara nokkuð ágætlega... en að því loknu var rölt um og skoðað e-ð fleira skemmtilegt eins og e-ð gamalt fangelsi sem stendur við Signu-bakka, dómshúsið eða jafnvel hæsta rétt??, Notre dame þar sem verið var að messa und alles!, Bastillu-torgið o.fl. fjörugt ;) Þegar kvölda tók var farið heim þar sem Anna Magga bakaði líka þessa dýrindis frönsku böku, Erna eldaði pastarétt og ég sá um eftirréttinn: fylltar lakkrísreimar að hætti Íslendinga ;) Við meirað segja náðum að horfa á úrslitakvöld undankeppni Eurovision og seinna The Silvia Night Show! ;)

Vinstri ökklinn var e-ð að bögga mig þegar ég vaknaði á sunnudeginum... en það þýðir lítið að væla yfir því þegar maður er í borgarferð og þarf virkilega á fótunum að halda ;) Sunnudagurinn var nebblea tileinkaður nýju ári í Kína með tilheyrandi skrúðgöngu og uppsprengingu Kínverja ;) Það var rosa gaman að sjá, svo ekki sé talað um STUTTERMABOLA-veðrið sem var þennan dag og það rétt miður febrúar!! Það var að vísu ekki mikið hægt að sjá vegna fjölda fólks sem var þarna komið saman til að sjá það sama og við... en fólk notaði mismunandi aðferðir til að sjá það sem um var að vera:

Erna var samt svo fella óheppin að þurfa að vera heima að gera e-a grein sem hún átti að gera fyrir hugsandi.is, mæli eindregið með því að lesa hana HÉR, en hún hitti okkur svo seinnipartinn. Ákveðið var þá að skreppa í Rauða hverfið til að sjá Rauðu mylluna [Moulin Rouge] ásamt verslununum sem þar var að finna og einni einkar léttklæddri konu....

Afram hélt leið okkar í Kínahverfið þar sem planið var að eta sem endaði að vísu á Víetnömskum. Hadda Hrund var ekkert svöng, hvort sem það var vegna verkja eða e-u öðru, en náði þó að torga eins og 1124 stk af hrísgrjónum með soya ;) Þegar heim var komið bakaði Anna Magga þessa líka ljúffengu frönsku súkkulaðiköku sem auðvitað var ekki flókið að torga! Jammí!! ;)
Helga Guðrún vaknaði svo fárveik um mánudagsmorguninn.... greyið litla.... en Anna Magga var svo góð að vera hjá henni á meðan ég og Erna fórum að versla smá, sagðist þurfa að læra, góða, góða Anna Magga ;) Eftir að hafa tekist að versla góðann slatta settumst við Erna niður á Pizzeria þar sem við fengum brillíant góðar pizzur en ég það er aftur á móti ALLT annað að segja af blessaða þjóninum sem STINKAÐI af 5 ára svitafýlu!!! Annað eins hef ég aldrei fundið né upplifað!!! Shæzen... hefði kannski ekki upplifað hana svona sterkt nema hvað að hann var ALLTAF að labba framhjá okkur, fyrst kom hann með hnífapörin, svo vatnið, svo oliuna, svo menu-inn og stóð yfir okkur á meðan við ákváðum okkur.... leyfði okkur svo rétt að anda á meðan við borðuðum og mætti svo aftur með reikninginn og stóð yfir okkur á meðan við týndum upp úr veskinu!! Sveitti dóninn!!!

Á þriðjudaginn, og jafnframt síðasta daginn fyrir brottför, var stefnan tekin á RISA íþróttavöruverslun, því næst var splæst á cheeseburger og brunað svo beinustu leið með metró að Eiffel-turninum. Þar beið okkar heldur betur þessi vææææna röð... ég ætlaði ekki að nenna að bætast aftan við hana, en Helga Guðrún var til og ég bara tók því.... Erna og Anna Magga skelltu sér heim með næsta metró og voru svo góðar að taka allan verslunarafrakstur dagsins með sér ;) Loks kom að okkur að taka kláfinn upp á 2. hæð í turninum eftir eflaust klst bið, sem var nú bara nokkuð gott mv. lengd raðarinnar! Það var aðeins farið að dimma þá, en við tók bara önnur eins röð til að komast í lyftuna sem fór alla leið upp á topp, þannig að við vorum eiginlega basically allan tíman í röð ;) En upp fórum við og það var rosa fílingur og hnútur í maga að vera svona hátt uppi en auðvitað vel þess virði að bíða í röðum... ;)

Á miðvikudaginn var komið að því að kveðja.... alltaf leiðinleg stund. Allt búið að vera rosa skemmtilegt, topp gestgjafar, topp veður og topp skemmtun ;)En auðvitað er alltaf gott að koma heim og þá sérstaklega þegar bestasti Doddinn minn bíður eftir mér... ;) Saknaði hans alltof mikið, borgar sig að taka hann bara með í næstu umferð ;)
En mig langar að þakka Önnu Möggu og Ernu kærlega fyrir okkur, þið eruð æði! ;)
Ég setti inn myndir frá ferðinni hér: http://public.fotki.com/hhg23/ - Blæðið bara á mig kommenti á msn til að fá lykilorð ef áhugi er fyrir hendi
Í gær átti minns svo afmæli (og auðvitað Tinna frænka líka :) og ég eyddi deginum bara í vinnunni til 4 og svo út að borða og í bíó með Doddanum mínum. Fórum auðvitað á 23 með Jim Carrey... en ekki samt spyrja hvernig hún var, ég hélt mér varla vakandi... örugglega samt bara af því ég var þreytt frekar en leiðinlegt mynd ;)
Nenn'iggi... Kann'iggi....Hadda Hrund Guðmundsdóttir
Æi... ég er nú meiri horror bloggarinn, ef bloggari skyldi kalla....En svona fyrir þá sem ekkert af mér hafa heyrt, þá er ég nú a.m.k. alveg á lífi.... ég er bara enn sami lukkunanar pamfíllinn sem þjáist kannski pínu af "kærastaveikinni"... en það fylgir því að vera ástfanginn víst .... ;)
Þar fyrir utan þarf ég víst að vinna e-ð, svona ca. 82% + e-a laugardaga og svo er ég víst í skólanum 2 daga í viku sem ég er svoooooo ekki að nenna! Kannski er það bara vegna þess að ég kann ekki að vera svona lítið í skólanum.... eða þá bara vegna þess að mánudagstímarnir eru þeir ALLRA leiðinlegustu sem ég hef og mun (vonandi) nokkurn tíman upplifað!! Piff.....
En ég held að ég sé e-ð farin að misskilja hvernig maður bloggar og hvurt pointið er.... ég kem bara hingað þegar ég þarf að röfla eða tuða yfir e-u.... :P
Reyni kannski að koma með e-ð skemmtilegra næst ;)
Varúúúúð!Hadda Hrund Guðmundsdóttir
Þannig var það nú að ég var loksins búin að finna draumaúrið mitt sem ég bara VARÐ að kaupa, sem ég og gerði og allt í lagi með það…. Borgaði bara mína pligt og er svo bara búin að vera að bíða eftir úrinu þar sem seljandinn sagðist hafa sent það af stað þann 12. des og tæki það ca. 10 virka daga með póstinum. Jæja, mér fannst vera orðinn ágætur tími síðan það var og þó voru auðvitað jól, áramót og allt það vesen þess á milli…. En ég kíkti s.s. inn á mitt eBay og seljandinn sem var með 100% “feedback” og bara greinilega margir ánægðir viðskiptavinir hjá honum, var allt í einu kominn niður í 90%, s.s. e-r 90 manns búnir að kvarta s.l. daga. Þá hafði vinurinn (seljandinn) bara hætt sem seljandi á eBay (eða verið sagt upp) og eftir stendur fjöldi fólks með sárt ennið sem er búið að borga vöruna en fá hana ekki afhenta!
Ég kann ekkert á þetta og efast um að maður geti e-ð gert til að fá þetta endurgreitt, alveg örugglega ekki….. bara glatað fé….. en heeeví fúlt!
En ég vona að þetta sé bara mín óheppni og fleiri lendi ekki í þessu veseni….
Því bið ég ykkur bara öll vinsamlegast um að fara varlega í þessum viðskiptum! ;)
Gleðilegt ár!!!....Hadda Hrund Guðmundsdóttir
..... og takk fyrir það gamla! ;)
Það er komið 2007!!! Mér finnst ekki fyrr vera komið 2006.... fljótt að líða! Það fer kannski að koma tími á að ég fari að panta mér pláss á elliheimili og fari á hin ýmsu tungumálanámskeið til að geta rætt málin við fólkið sem þar mun starfa og sjá um mig ![]()
Ég er að venju búin að hafa það mjög ljúft þessa dagana.... bara étið, sofið og unnið pínu... en tók þó spinning á þetta kl. 6:20 í morgun! (eins gott að byrja árið á því...) En ég var alveg með það á hreinu að líkamsræktarstöðvar landsins yrðu fullar kl. 6:00 í dag og ákvað því að mæta tiltölulega snemma til að ná hjóli, en þegar ég mætti rúmlega 6 þá voru 3 bílar á planinu!
Aldrei séð það eins slæmt fyrir utan Sporthúsið.... við vorum 4 mætt í tímann þegar þjálfarinn mætti og hún tilkynnti okkur að við yrðum að vera 5 til að tíminn yrði, en það slapp svo fyrir horn þegar 5. bjargvætturinn mætti ;) Alls urðum við svo alveg 8 manns, hörku stuð ;)
Múttan mín og lille systir fóru norður 3. í jólum og Andri Freyr til pabba svo við Doddz erum bara búin að vera alene í kotinu þessa dagana og því ákvað ég í tilefni þess að breyta til af 23ja ára gamalli venju og fara upp á Skaga til að eyða áramótunum, í stað þess að vera stödd í Kópavoginum, eins og ÖLL mín ár
Við fengum þetta líka fína lambalæri í matinn ásamt tilheyrandi og mögnuðustu súkkulaðiköku ársins í eftirrétt! Magnið af sprengjum var það mikið (ca. fyrir 300.000) að tekið var smá forskot á sprengingar þar til skaupið byrjaði, sem mér fannst bara alveg allt í lagi..... (þ.e. skaupið.)
Kl. 00:00 var nýju ári að venju fangað og þá fyrst hófust sprengingarnar!! Ein tertan kom á fætur annarri og annað eins magn hef ég aaaldrei séð á einu heimili. Ég sem var e-ð að grenja það að missa af Kópavogsbrennunni og flugeldasýningu en þetta var langt um betra en það! Flugeldasýning í tæpann klukkutíma ;)

Um kl. 01:30 var enn verið að reyna að komast niður úr minni sprengjunum og var draslið út á götu eins og eftir Íraksstríð. Við pilluðum okkur þá fljótlega í bæinn og kíktum í hitting hjá Ingvari. Þar vorum við til að verða 6 í góðum fíling og þar sem Ingvar á myndarlegustu konu í heimi þá ákvað hún að “skella bara” í eina tertu svona fyrir morgundaginn og við vorum svo heppin að fá GLÆnýja köku og mjólk! Jammíííí.....
Á morgun byrja ég svo aftur að vinna hjá Sparisjóð Vélstjóra / Sparisjóð Hafnarfjarðar og hlakka bara til þess. Það er komið ágætt af leti og þýðir ekkert annað en að fara að taka í hnakkadrambið og takast á við nýtt ár!! ;)
Gleðilegt ár (aftur) alle sammen og takk fyrir það gamla!
![]()
Jólin, jólin, enn á ný….Hadda Hrund Guðmundsdóttir
Jólin eru búin að vera alveg hreint lovely barasta…. Við Gullz byrjuðum á því að taka smá forskot á sæluna með því að taka smá jamm á’etta 15. des, svona aðallega til að fagna jólafríinu og tókst það bara alveg hreint með ágætum þar sem við skelltum okkur í bæinn, kíktum á nánast alla staði bæjarins og enduðum svo á Hverfisbarnum (af öllum stöðum) þar sem við dönsuðum rassana af!
Næstu dagar fóru svo bara í vinnu og jólaundirbúning…..
Loks kom að því, aðfangadagur runninn upp og minns alveg orðinn veeeel spenntur fyrir pakkaopnun, ég mun aldrei þroskast upp úr því…
LOKS kom að því að pakkaflóðið var opnað og ég var ekkert smotterís ánægð með það sem kom undan jólapappírnum! Marg borgar sig að gera óskalista J
Doddinn minn gaf mér silfurhring með 3 demöntum! Ásamt skóm sem ég hafði óskað mér vel og lengi….
Mamma og Jakob gáfu mér Sony digital-myndavél
Amma og afi gáfu mér poppvél (sem er nottla algjört möst og var ofarlega á óskalistanum J
Helga Guðrún gaf mér skó, töff skó J + hand-made myndaramma a la HGG
Andri Freyr gaf mér bílatengi fyrir iPodinn minn
….Einnig fékk ég 2 x ilmvötn (lykta greinilega svona hrottalega illa), snyrtidót, hálsmen, sætishitara í bílinn o.m.fl. skemmtilegt J
S.s. bara vooooða hamingjusöm og sátt með útkomuna J
Eftir pakkaflóðið og jólaísinn lá leiðin upp á Skaga til að hitta Dodda og hans stóóóru famelíu J Vaknað var svo í hádeginu á jóladag þar sem hangikjét og huggulegheit var á boðstólnum. Því næst tók bara við DVD, popp og letilíf þar til vaknað var aftur í hádegi næsta dags og brunað upp í Borgarnes í næsta jólaboð hjá pabba Dodda.
Nú er það bara aftur vinna og smá pása frá ofáti þar til á gamlárs…..
En hvað er málið að gera skemmtilegt á gamlárs??? ![]()
JABADABADÚÚÚÚÚ!!!!Hadda Hrund Guðmundsdóttir
Ég er ekki alveg að fatta þetta enn....En ég er s.s. búin með BS-verkefnið mitt!! Vorum að verja það í morgun og það gekk bara glimrandi! (að eigin sögn
Það þýðir s.s. að ég er komin í JÓLAFRÍÍÍÍÍ!!!
Partý partý!
Góðverk dagsinsHadda Hrund Guðmundsdóttir
Jáh, það er alltaf gott að gera góðverk, þó maður geri nú aldrei of mikið af þeim ;)
En í dag kom til okkar eldri maður í bankann, klökkur á svip, og sagðist hafa týnt bílnum sínum.... hann bara finni hann ekki á bílastæði Smáralindar í þessu myrkri og örtröð... og ekkert skrítið við það þannig séð...
En hann þrammaði um allt bílastæðið í leit að bílnum og kom inn á bensínstöð til okkar annað slagið til að hvíla sig og hvergi bólaði á bílnum...
Kl. var rétt 5 og hann sagðist ætla að bíða eftir að allir bílarnir færu, sem var ekki fyrr en í fyrsta lagi kl. 7...
Ég benti honum á að hringja á lögregluna og fá hana í málið með sér, en hann sagðist ekki vera maður í það, frekar finndi hann útúr þessu sjálfur ;)
Jæja oki... greyið maðurinn rölti alltaf út annað slagið í leit af bílnum og kom alltaf aftur jafn svekktur.... Ég vorkenndi honum ekkert smotterís, langaði helst til að stimpla mig út og finna upp á bílnum.... En áfram leið tíminn og kl. varð 7 og við lokuðum bankanum.
Við buðumst til að rúnta bara með hann um Smáralindarbílastæðið til að finna fyrir hann bílinn svo hann kæmist nú heim greyið kallinn... hann þáði það jú með trega og við fórum í að fínkemba bílastæðið og hvergi var bílinn að finna.... Hann minnti þá að hann hafi komið úr áttinni frá Byko svo við ákváðum að kempa Smáratorgs-bílastæðin líka... og enginn bíll var þar að sjá... :/
Jæja, ég ákvað þá að fara í átt að BYKO og hjálpa honum að rifja upp leiðina og í því sáum við gripinn! Stóð þarna fyrir aftan Elko þar sem hann hefði parkerað honum og steingleymt því svo greyið :S
Snúllu maðurinn klökknaði bara við það að sjá bílinn, þar sem hann var farinn að sjá fyrir endann á þessari leit sinni....
En já, svona endaði það, fallega og brillíant! Alltaf ljúf tilfinning að geta hjálpað e-m og það sérstaklega gömlu og þakklátu fólki ;)
JABADABADÚÚÚÚÚ!!!!Hadda Hrund Guðmundsdóttir
Já það kom loksins að því! BS-verkið frábæra er búið og komið í fast form m/kápu und alles ;)
Ég er ekki að trúa þessu..... en ágætis tilfinning samt sem áður ;)
Þetta er að vísu ekki búið enn þar sem við þurfum víst að verja gripinn 13. des..... en eftir þann dag verð ég komin í JÓLAFRÍÍÍ!
Næsta önn verður svo e-ð spes hjá mér þar sem ég verð bara í 2 fögum.... kanniggisollis..... en fékk vinnu með hjá SPV, svo það er gúd... held a.m.k. 8-16 rútínunni minni ;)
En ætli það fari ekki að koma tími á að ég fari e-ð að opna bók fyrir próf sem verður 1. og annað 7. des..... er bara ekki að nenna.... maður má nú alveg aðeins pústa eftir skil á BS-verkefni........ jájájájá....
Hætt!...... í bili a.m.k.....Hadda Hrund Guðmundsdóttir
Yups, ég held ég sé hætt að reyna að blogga e-ð!Líf mitt þessa dagana snýst bara um happyness, overload í skóla og stress = e-ð sem enginn nennir að hlusta á.... svo ég er hætt að blogga þar til e-ð frásögufærandi gerist! ;)
Until next time....
Tjá!
Ljúfa líf ljúfa líf!Hadda Hrund Guðmundsdóttir
Já.... lífið er ljúft þessa dagana skal ég segja ykkur..... þó skólinn sé að vísu að overdósa og allt það..... og í tilefni þess nenni ég ekkert að bloggaTjá!