Braaaakandi sumarblíđan alltaf hreint!Hadda Hrund Guđmundsdóttir


Hveeeeer pantaði þetta veður hingað???? Vinsamlegast gefðu þig fram, því ég er blásaklaus í þeim málum!

Þetta líka brjálæðislega vetrar/haustveður barðist um á glugganum mínum (og þínum örugglega líka) í nótt! Mann langaði bara til að draga sængina upp fyrir haus og skrópa í skólann……. En neiiiii það er ekki skóli??? Það er/á að vera SUMAR!! Ég er samt ekki alveg að kaupa það….

Það eina bjarta sem ég sé í þessu dæmi og ætla að trúa á er að sumarið sé bara að “spara” sig fyrir Þjóðhátíð!! Hljómar það ekki raunhæft?? Jú akkurat ;)
Veðurguðirnir ætla að spara brakandi sólarblíðuna þar til Hadda Hrund (og kannski e-r aðrir sem mæta á Þjóðhátíð) sleppi út fyrir skrifstofudyrnar og nái að njóta blíðunnar!


Ég veit ég er sannfærandi, mjööög sannfærandi ;) Það þýðir lítið annað en vera bjartsýnn á þessu landi, því greinilega ætlar sólin ekki að hjálpa til við það! Svalur

  

ÚravöntunHadda Hrund Guđmundsdóttir

Ég er alveg að missa mig á ebay þessa dagana, langar svo mikið í nýtt úr og hef ekki verið rónni síðan ég missti af flottasta úri ever á ebay = hvítt DKNY úr plasti.....ooofursmart 

Aha frekar spes áhugamál....

Nokkur úrin hafa verið á dagskrá og mig langar mest í digital


1) Þetta er frekar töffað... en pirrar mig samt þetta "glans"...



2) Þetta er rosa "smart" en kannski örlítið of fínlegt... og þá um leið kannski ekki alveg ég...


3) Þetter frekar gæjalegt


4) Þetta er ofursvalt


5) Nokkuð smart bara sko....


Erfitt val og gengið kannski ekki alveg með manni til að fara útí svona hugleiðingar.... Svalur

Hvers á mađur ađ gjalda???Hadda Hrund Guđmundsdóttir


Hadda Hrund litla ætlaði að gera sér dagamun og taka strætó upp í Árbæ til að sækja bílinn sinn.... rölti upp í strætóskýlið hjá Smáralind, beið í 20 mín og þá loks kom strætó nr. 24! Hún var búin að fara inn á bus.is til að tjékka leiðirnar þar sem hún kann ekkert á þetta... Leitin “sniðuga” virkaði auðvitað ekki en með pússli þá fann hún út að leið 24 fari upp í Ártún og leið 5 frá Ártúni á ca. leiðarenda. Alltílæ með það.... en til að double tékka þá spurði hún;

“Fer þessi vagn ekki upp í Ártún?”
“Nei, ekki núna....” svaraði bílstjórinn.
“WHUT?? En fer leið 5 ekki frá Ártúni upp í hraunbæinn?”
“Nei, ekki núna....” svaraði bílstjórinn AGAIN og í því tók ég eftir gulum miða þar sem stóð “leið 5 er í fríi frá 1. júlí til 30. ágúst” eða e-ð svipað.....


Því spyr ég, hvernig á fólk að hafa nennu og tíma til að taka strætó ef þetta er byggt svona upp?????? Maður getur ekki einu sinni treyst leiðakerfinu því þeir breyta bara eftir hentileika!! Maður gæti t.d. ekki stólað á að komast í vinnu á hverjum degi því bílstjórarnir, eða hverjir sem það nú eru, ákváðu í gær að fella þessa ferð bara niður!!?!?!? Þetta er bara orðinn vítahringur svo afhverju ekki bara að leggja þetta niður?? Annað hvort er þetta bara allt eða ekkert... bara peningasóun að halda svona drasl strætókerfi uppi.


Jidúdamía! Þessari heiðarlegu tilraun verður a.m.k. frestað allveeeerulega lengi og þetta kostaði mig í staðin 1600 kr. með taxa að sækja bílinn! RUSL!

Ein reið og pirruð ;)

Jiiihhh....Hadda Hrund Guđmundsdóttir

Haldiði ekki bara að litla baby-ið mitt sé 7 ára í dag!! 07.07.2006! 
Hvorki meira né minna en 44 ára í kattarárum! Gamli minn...

Cat

Finnst ekkert langt síðan hann var svona lítill og sætur.... nú er hann bara stórt flókatrippi greyið Ullandi

En best að djamma í kvöld í "tilefni" þess! múhahaha Svalur Forfallnir djammarar finna sér nú alltaf tækifæri hversu merkileg sem þau eru...

Tja sveimérţá...Hadda Hrund Guđmundsdóttir

Sumarskóla-einkunnir komnar í hús og sumarskóli er bara alls ekki eins slæmur og ég hef blótað honum að vera... 0

En að öðru..... þá held ég barasta að ég sé búin að taka 99,98% ákvörðun um að fresta útlandaferðinni fram yfir áramót og skreppa mér bara á þjóðhátíð!! 0 Mig langar svooooo…..

Þjóðhátíð 

Það er eitthvað blóðugt við að gefa stórfé fyrir aðeins viku í sólinni…. Frekar að stinga af eftir áramót þegar veturinn verður í botni á Íslandi og allt verður orðið rólegt í skúlen…. Sneeeðugt 0

M.v. veðurfar sumarsins þá væri ekki ólíklegt að stígvél og 66° pollagalli væru góð fjárfesting fyrir verslunarmannahelgina… en nottla aaaldrei að vita nema brakandi sólin sé bara að spara sig fyrir Þjóðhátíð! Hvur veit??

Eina hovedpinen er þá hvort fara skuli með Gubb-ólfi eða taka sénsinn á Flugfélagi Íslands og ber þá að muna að ALLS EKKI setja farangurinn sinn í farangurshólfið, a.m.k. ekki þann fatnað sem nota skal á föstudagskvöldið, því að hanga uppá flugvelli heilt föstudagskvöld er ekki í uppáhaldi hjá mér… og örugglega ekki Ernu heldur 0

Ađalvalmynd

Auglýsing

Contact Me

MSN: haddahrund@msn.com
Email: haddah@ru.is
GSM: 615-0023